• Kawasaki 2010

    Kawasaki KX 65 2010 : 675.200 kr.
    Kawasaki KX 85 2010 : 841.847 kr.
    Kawasaki KXF 250 2010 : 1.395.000 kr.
    Kawasaki KXF 450 2010 : 1.498.000 kr.
    Kawasaki KLX 450 2010 : 1.827.872 kr.
    Kawasaki Versys 2010 : 1.596.065 kr.

  • Sérpantanir

    Getum sérpantað orginal varahluti í öll japönsku hjólin, frábært verð. Einnig getum við pantað vara og aukahluti í fjórhjól og vélsleða. Hafið samband eða lítið við í verslun okkar að Bíldshöfða 9.
  • Tilboð i mars

    Febrúartilboð hjá Nítró. M2R Cyborg hjálmur, sætistaska, trelleborg nagladekk og hjólafesting

    februartilbod

Calendar Laugardagur, Mars 13, 2010
Text Size
   
Sýning á 2010
Föstudagur, 12 Mars 2010 15:57

Næstkomandi fimtudag verður sýning í Nítró þar sem sýnd verða nýju Kawasaki hjólin 2010 árgerð. Flott tilboð verða í boði og breið lína af hjólum til sýnis. Nánar um þetta eftir helgi, fylgist vel með hér á síðunni.

 

 
Klausturskeppnin, vinsælasta akstursíþróttakeppni fyrr og síðar, endurvakin
Föstudagur, 12 Mars 2010 12:09

Ein fjölmennasta íþróttakeppni og langstærsta akstursíþróttakeppni sem haldin hefur verið hérlendis, Klausturskeppnin svokallaða, verður endurvakin á Kirkjubæjarklaustri um komandi Hvítasunnuhelgi. Keppnin sem síðast var haldin árið 2007 laðaði að sér hátt í 500 keppendur og verður því kærkomin viðbót í keppnisalmanak mótorhjólafólks. Vélhjólaíþróttaklúbburinn og MSÍ ( Mótorhjóla- og snjósleðasamband Íslands) standa að keppninni ásamt landeigendum. Keppnin verður haldin 23. maí n.k. í landi Ásgarðs sem er skammt frá síðustu keppnisbraut. Gengið hefur verið frá 5 ára samningi við landeigendur um keppnishaldið og er stefnt að uppbyggingu varanlegrar aðstöðu fyrir keppendur og áhorfendur. Samningurinn er lyftistöng bæði fyrir sportið, og ekki síður ferðamennsku á svæðinu. Ábúendur á Ásgarði og fleiri samstarfsaðilar á svæðinu eiga bestu þakkir skyldar fyrir að bjóða hjólafólk velkomið á landið sitt.

Markmið Vélhjólaíþróttaklúbbsins er að halda skemmtilega keppni við allra hæfi og laða að jafnt keppendur sem og aðstandendur þeirra, og búa til sannkallaða fjölskylduskemmtun. Það er ennfremur mikilvægt markmið að skipulag  og umgengni á svæðinu öllu verði til fyrirmyndar. Áhersla verður lögð á gott samstarf við landeigendur og aðra samstarfsaðila á svæðinu.

Undirbúningur er þegar hafinn og komnar eru grófar línur um keppnisbraut sem liggur núna nær þjóðveginum.  Keppendur og áhorfendur munu því geta fylgst mun betur með keppninni en fyrr.

Keppnin hefst kl. 12 á hádegi og lýkur ekki fyrr en 6 tímum síðar eða kl. 18. Þolakstur á mótorhjólum er ein erfiðasta íþróttagrein heims og keppnin því langt frá því að vera auðveld, þó svo skemmtunin sé lykilatriði flestra þátttakenda.
Keppt verður í nokkrum flokkum s.s. einstaklingsflokki, en sigurvegarinn þar fær sæmdarheitið „Járnkarlinn" að keppni lokinni, enda gríðarleg þolraun að keppa einn í 6 tíma í keppni sem þessari. Einnig verður keppt í tveggja og þriggja manna liðum.  Veitt verða ýmiss skemmtileg verðlaun s.s. í flokki þar sem foreldri og barn keppa saman, eða þar sem samanlagður aldur tveggja er 90 ár eða hærra, og í  flokki þriggja þar sem samanlagður aldur keppenda er 135 ára eða meira.
Það verður því stutt í léttleikann og stemninguna þegar menn safnast saman í grennd við Kirkjubæjarklaustur um Hvítasunnuna 23. maí n.k.

Skráning í keppnina fór fram á vefnum www.motocross.is og hófst skráningin kl. 22 þann 10. mars og sólahring seinna var orðið uppsellt og 400 manns skráðir til leiks.

 
Nýtt umboð
Miðvikudagur, 10 Mars 2010 12:24

Nítró hefur keypt upp allan lager SportX á akureyri og erum við nú umboðsaðilar fyrir Yiben vespum, Hi-sun fjórhjólum og UTV (vinnubílar), eins eigum við nú vörur frá Mustang o.fl. Við verðum að sjálfsögðu bæði með varahlutaþjónustu og verkstæðisþjónustu fyrir tækin sem hafa verið seld hjá SportX. Einnig erum við að setja saman pöntun með Hi-sun fjórhjólum og UTV (vinnubílum), frábært verð. Áhugasamir geta haft samband við sölumenn okkar í síma 440-1220. Einnig eigum við til Yiben vespur á lager í nokkrum útfærslum, verða til afgreiðslu á næstu dögum.

 

 
Bryndís Einarsdóttir fær styrk frá Acerbis
Mánudagur, 15 Febrúar 2010 15:13

Acerbis á Ítalíu hefur ákveðið að styrkja Bryndísi Einarsdóttur með fatnaði og hlífðarbúnaði. Bryndís er ung og efnileg stelpa sem hefur keppt mikið í motocrossi bæði hér heima og erlendis. Hún gerði nýlega samning við Acerbis um keppnisstyrk, en hún mun keppa í fatnaði og hlífðarbúnaði frá Acerbis. Þetta er mikill heiður fyrir unga stelpu frá Íslandi að fá styrk frá svona stórum og miklum framleiðanda. Við óskum Bryndísi innilega til hamingju með samninginn og um leið bendum við fólki á að Nítró er umboðsaðili Acerbis á Íslandi.

bryndisspons

 
Endurocross á sunnudaginn
Þriðjudagur, 09 Febrúar 2010 14:06

Nú er komið að því gott fólk, önnur umferð í endurocrossinu verður haldin næstkomandi sunnudag 14. febrúar. Endurocrossið verður að sjálfsögðu haldið aftur í reiðhöllinni í Víðidal og byrjar dagskráin kl. 14:00. Mikil stemmning er fyrir keppnina og ætla bestu keppendur landsins að mæta á svæðið. Skráning er hafin inn á motocross.is

 

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við Nítró í síma 440-1220 eða í gegnum tölvupóstinn nitro@nitro.is

Opnunartími : 8:00 - 18:00 | Mánudags - föstudags
                      10:00 - 14:00 | Laugardaga

Verkstæði

Nítró verkstæðið er keyrt áfram af miklum krafti og er lagt mikið upp úr vandvirkni. Valur Vífils á Nítró verkstæðinu sér til þess að hjólið þitt komi frá okkur í toppstandi eftir viðgerð. Síminn á verkstæði okkar er 535-9110.

Umboð

Nítró er með umboð frá öllum helstu fyrirtækjum í bransanum og má þar nefna Kawasaki, Husaberg, Beta, Vento, Rieju, TerraMoto, One industries, No-Fear, O'neal, M2R, Airoh, Zeta, Michelin, ProGrip, Spy o.fl.