| Endurocross á sunnudaginn |
| Þriðjudagur, 09 Febrúar 2010 14:06 |
|
Nú er komið að því gott fólk, önnur umferð í endurocrossinu verður haldin næstkomandi sunnudag 14. febrúar. Endurocrossið verður að sjálfsögðu haldið aftur í reiðhöllinni í Víðidal og byrjar dagskráin kl. 14:00. Mikil stemmning er fyrir keppnina og ætla bestu keppendur landsins að mæta á svæðið. Skráning er hafin inn á motocross.is |

