Calendar Fimmtudagur, September 09, 2010
Text Size
   

Nítró á Facebook

Find us on Facebook
Klausturskeppnin, vinsælasta akstursíþróttakeppni fyrr og síðar, endurvakin
Föstudagur, 12 Mars 2010 12:09

Ein fjölmennasta íþróttakeppni og langstærsta akstursíþróttakeppni sem haldin hefur verið hérlendis, Klausturskeppnin svokallaða, verður endurvakin á Kirkjubæjarklaustri um komandi Hvítasunnuhelgi. Keppnin sem síðast var haldin árið 2007 laðaði að sér hátt í 500 keppendur og verður því kærkomin viðbót í keppnisalmanak mótorhjólafólks. Vélhjólaíþróttaklúbburinn og MSÍ ( Mótorhjóla- og snjósleðasamband Íslands) standa að keppninni ásamt landeigendum. Keppnin verður haldin 23. maí n.k. í landi Ásgarðs sem er skammt frá síðustu keppnisbraut. Gengið hefur verið frá 5 ára samningi við landeigendur um keppnishaldið og er stefnt að uppbyggingu varanlegrar aðstöðu fyrir keppendur og áhorfendur. Samningurinn er lyftistöng bæði fyrir sportið, og ekki síður ferðamennsku á svæðinu. Ábúendur á Ásgarði og fleiri samstarfsaðilar á svæðinu eiga bestu þakkir skyldar fyrir að bjóða hjólafólk velkomið á landið sitt.

Markmið Vélhjólaíþróttaklúbbsins er að halda skemmtilega keppni við allra hæfi og laða að jafnt keppendur sem og aðstandendur þeirra, og búa til sannkallaða fjölskylduskemmtun. Það er ennfremur mikilvægt markmið að skipulag  og umgengni á svæðinu öllu verði til fyrirmyndar. Áhersla verður lögð á gott samstarf við landeigendur og aðra samstarfsaðila á svæðinu.

Undirbúningur er þegar hafinn og komnar eru grófar línur um keppnisbraut sem liggur núna nær þjóðveginum.  Keppendur og áhorfendur munu því geta fylgst mun betur með keppninni en fyrr.

Keppnin hefst kl. 12 á hádegi og lýkur ekki fyrr en 6 tímum síðar eða kl. 18. Þolakstur á mótorhjólum er ein erfiðasta íþróttagrein heims og keppnin því langt frá því að vera auðveld, þó svo skemmtunin sé lykilatriði flestra þátttakenda.
Keppt verður í nokkrum flokkum s.s. einstaklingsflokki, en sigurvegarinn þar fær sæmdarheitið „Járnkarlinn" að keppni lokinni, enda gríðarleg þolraun að keppa einn í 6 tíma í keppni sem þessari. Einnig verður keppt í tveggja og þriggja manna liðum.  Veitt verða ýmiss skemmtileg verðlaun s.s. í flokki þar sem foreldri og barn keppa saman, eða þar sem samanlagður aldur tveggja er 90 ár eða hærra, og í  flokki þriggja þar sem samanlagður aldur keppenda er 135 ára eða meira.
Það verður því stutt í léttleikann og stemninguna þegar menn safnast saman í grennd við Kirkjubæjarklaustur um Hvítasunnuna 23. maí n.k.

Skráning í keppnina fór fram á vefnum www.motocross.is og hófst skráningin kl. 22 þann 10. mars og sólahring seinna var orðið uppsellt og 400 manns skráðir til leiks.