Calendar Fimmtudagur, September 09, 2010
Text Size
   

Nítró á Facebook

Find us on Facebook
Fjórhjólatöskur
Miðvikudagur, 08 September 2010 09:43

ATVDB_largeVorum að fá sendingu af fjórhjólatöskum og þar á meðal þessa rúmgóðu tösku. Taskan er með þrjú góð hólf og tvö af þeim eru einangruð og vatnsheld þannig að það er tilvalið að nota þau fyrir kælingu þar sem hægt er að hafa klaka í þeim, Hvert hólf er með sér rennilás og flipa sem leggst yfir samskeitin til þess að tryggja betur að væta og vindur komist ekki að hólfínu. Passar á flest fjórhjól hvort sem er að framan eða að aftan. Sex ólar fylgja til þess að festa töskuna á hjólið.

Verð 20.564,- kr.

 
Aukahlutir og búnaður
Fimmtudagur, 02 September 2010 10:12
DRC_plakat_vef
Vorum að taka upp sendingu frá DRC og Zeta með helling af sniðugu dóti fyrir hjólamanninn, hér að ofan eru sýnishorn af úrvalinu.
 
Sniðugir bensínbrúsar
Miðvikudagur, 01 September 2010 13:53

kolpin-fuel-pack-2

Vorum að fá í hús þessa stórsniðugu bensínbrúsa sem hægt er að nota á fjórhjól, vélsleða, mótorhjól, báta, bíla og næstum hvað sem er. Níðsterkir brúsar í tveimur stærðum með lausum stút og stærri brúsinn kemur með ólum til að festa hann niður. Einnig er hægt að kaupa mjög sniðugar festingar fyrir brúsana. 

Stærri brúsinn tekur 15 lítra og málin eru: B 8 cm L 87 cm H 33 cm. Verð 25.400,- kr.

Minni brúsinn tekur 5,7 lítra, B 29 cm H 31 cm B 11 cm. Verð 9,700,- kr.

 
Stolið hjól
Þriðjudagur, 31 Ágúst 2010 16:47

Kawasaki KXF 250 2008 árgerð var stolið af Heklu Daða á milli kl. 21:00-23:00 sunnudaginn 29. ágúst síðastliðinn. Hjólið er á nýjum dekkjum, með nýja keðjusleða (TM designwork), smáhekladada brot er í handahlífum, tímatökusendir er einnig á hjólinu, einnig er festingin fyrir kveikjuheilann brotin svo hann er strappaður niður. Hjólið er með Nítró límmiðakitt (mögulega búið að taka það af).

Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um hjólið eru beðnir um að hafa samband við lögreglu eða Nítró.

 
Einstakt tækifæri!
Þriðjudagur, 31 Ágúst 2010 11:27

f_31tt2pjcugxm_b243a39BMW R1200 GS Adventure hjólið er nú á einstöku tilboði í Nítró. Þetta er án efa eitt flottasta ferðahjólið í sínum flokki.

Skemmtilegur Boxer mótor er í hjólinu sem skilar 105 hp og 115NM í tog.

ABS bremsur eru á hjólinu með tveimur fljótandi bremsudiskum að framan og einum að aftan.

 

Upplýsingar

Vél: 2 cylendra Boxer

Kæling: Loft og olíukælt

Kúpic: 1170cc

Gírar: 6 gíra

Þyngd: 203 kg

Bensíntankur: 20 L

Hestöfl: 77 KW / 105 hp

Hámarkshraði: 200 km +

Eyðsla: 4.3 l/100

Árgerð 2009

 

Sérstak tilboðsverð: 2.980.000,- kr.

 
Alvöru kerrur, leður og króm
Miðvikudagur, 25 Ágúst 2010 14:41

Vertu hjartanlega velkomin á bílasýningu Krúserklúbbsins á morgun milli kl. 19.00-21.00

• Krúserklúbburinn sýnir flottustu eðalvagna landsins.

• Frítt Maxi popp – flugdrekar og frisbeediskar fyrir börnin, meðan birgðir endast.

• Krúserbandið leikur leðurklæddan og krómaðan blús af fingrum fram.

• Grillaðir Búlluborgarar og kók á 600 kall.

• 30% afsláttur af bón og hreinsivörum, olíuvörum, ferðavörum, hjálmum, grillum

og grillvörum…og kraftmesta útsala landsins í Nítró - verulegur afsláttur er af Kawasaki hjólum, 30% afslátt af hjálmum, 30% afslátt af cross og götuskóm, 20% afslátt af leðurfatnaði o.fl.

Sjáumst hress á Bíldshöfða 9 á morgun!

ATH! Einungis verður afsláttur á milli 19:00-21:00 og ekki er hægt að taka frá fyrr um daginn, fyrstur kemur fyrstur fær.

 
Verðlækkun á hjólum!
Mánudagur, 23 Ágúst 2010 14:40

KAWASAK_tilbodjpg

Nú höfum við ákveðið að skella á tímabundinni verðlækkun á öllum nýjum Kawasaki hjólum í sal út ágúst, þannig að nú er tækifærið að tryggja sér glænýtt hjól á fáranlega góðum afslætti. Fyrstir koma, fyrstir fá! 

Hérna er listi yfir þessi hjól:

KX85 690.000,- kr. / KX250F  1.190.000,- kr / KXF450F  1.290.000,- / KLX450F árg. 08  1.090.000.- kr.

Versys 650  1.290.000,- kr. / Ninja ZX6R árg. 09  1.690.000,- kr. / Z750 árg. 09  1.290.000,- kr. / Z1000 1.990.000,- kr.

GTR1400  Custom 2.999.000,-kr / VN900  Classic 1.590.000,- kr. / VN1700 Classic  2.190.000,- kr.

VN1700 Classic Tourer  2.490.000,- kr. / ER650 N árg 09  1.090.000,- kr. / KLR650  1.290.000,- kr. / KVF750 fjórhjól  1.890.000,- kr.

Bjóðum einnig upp á eftirfarandi hjól á góðu verði:

Znen Vespa 50cc 195.000,- kr.  / TDR barnahjól, CRF01A 70cc 119.000,- kr. / TDR KLX01C 125cc 169.000,- kr. / TDR KLX02 149cc 189.000,- kr. / Asian Wing LD450 799.000,- kr.

Sjá frekari upplýsingar um hjólin í vörulista undir Mótorhjól og fjórhjól.



 
Leatt Brace BMX,DH,Dirtjump kraginn komin

Núna er loksins komin græja sem passar upp á hálsinn á ykkur DH og BMX durtum.
Leatt Brace var að koma með kraga sem er sér hannaður fyrir BMX,DH og Dirtjump Durta.
http://www.leatt-brace.com/index.php?page_id=64&id=3
Þessar græjur koma 2 mismunandi týpur af og er hægt að stilla dýrari kragan meira en þann ódýrari.
DBX Comp kostar 59.900.-
DBX Ride kostar 34.900.-
Skyldueign fyrir alvöru hjólara

Brace-DBX-Ride-black-greyBrace_DBX_Comp_white.jpg_thumb

ATH
Kostar sama og í USA.
Sjá Nánar

www.leatt-brace.com

 
Asian Wing reynist vel
Þriðjudagur, 17 Ágúst 2010 14:49

asianwing

Asian Wing hjólið eða Vængurinn eins og við hérna í Nítró höfum kallað hjólið hefur verið í reynsluakstri síðustu vikur. Búið að keyra prufuhjólið yfir 500 km. við mismunandi aðstæður og óhætt er að segja að það hafi komið skemmtilega á óvart. Hjólið hefur ekki slegið feilpúst þrátt fyrir að vera ekið við hinar erfiðustu aðstæður af vönum ökumönnum sem kalla ekki allt ömmu sína. Kramið í hjólinu er mjög gott og það dettur í gang eins og klukka, fjöðrunin virkar vel og mótorinn skilar fínum krafti, og ef einhver vill meiri orku þá er örugglega hægt að fá hana með kraftpústi og smá tjúningum.

Nú er þetta skemmtilega hjól á sérstöku kynningartilboði í Nítró á aðeins 799.900,- með skráningu.

 
Heimaboð KKA
Föstudagur, 30 Júlí 2010 09:13
KKA í samvinnu við K2M og Nítró mun standa fyrir svokölluðu heimboði KKA

Laugardaginn 31. júlí Nitro K2M - Allt fyrir sleða & hjólafólk.

Frítt í mótocross og endurobraut KKA. Allir að hjóla einsog engin sé morgundagurinn.

sunnudaginn 1. ágúst 2010

* Endurokennsla fyrir byrjendur. hefst kl: 10:00 upp við félagsheimili. Kennari Þorsteinn Hjaltason. Frítt.

* Enduroferð K2M fyrir alla. ca 2-3 tímar. Mæting með hjól á kerru eða bíl upp við félagsheimili KKA kl:13:00

* Torfærukeppni. á sunnudag kl. 18:00 ef stemmari og einhver fjöldi verður?

Þjónusta:

Tvö gasgrill verða uppí húsi. Fólk getur því grillað og notað húsið að vild.

Ef einhver er í vandræðum með geymslu á hjóli yfir nótt meðan á Akureyrardvöl stendur þessa helgi, þá er bara að hafa sambandi við Sigurð hjá Nítró Aku. s: 893-0409

Bakvakt verður í Nítró ef eitthvað vantar. S:893-0409

Nánari uppl: Siggi s: 893-0409, Stebbi Gull s: 662 5252 Birkir: 893 7917

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 15