|
Verslunin Nítró var opnuð 20. desember 2003. Opnunartími er frá kl. 8.00-18.00 mánudaga til föstudags Nítró er staðsett á Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík (í sama húsi og N1). Verslunin er í dag um það bil 800 fm. Við erum með versktæði í tengslum við verslunina og er Valur Vífilsson verkstæðisformaður, en hann er annálaður fyrir vandvirkni og færni. Stefna fyrirtækisins er að vera með mikið úrval af götuhjólum, torfæruhjólum, fjórhjólum og skellinöðrum bæði notað og nýtt, ásamt fatnaði og fylgihlutum. Ennfremur verður lögð áhersla á góða þjónustu og góð tengsl við viðskiptavini. 9 útibú eru starfandi á landsbyggðinni, Egilstöðum, Akureyri, Ólafsvík, Reyðarfirði, Vestmannaeyjum, Keflavík, Selfossi, Akranesi og Höfn. Vöruúrvalið samanstendur m.a. af því besta frá Kawasaki, Husaberg, Beta, Terra Moto, Vento sem eru hjólaframleiðendur. Þar að auki erum við með það besta frá O'neal, Acerbis Spidi, One Industries, Kenda, Nitro, Orina, Progrip, Schampa, og Pivot Works sem framleiða fatnað og aukahluti. Erum alltaf með fullt af nýjum vörum! |

