Calendar Föstudagur, September 10, 2010
Text Size
   

Nítró á Facebook

Find us on Facebook
Kawasaki KXF 250 2010 valið hjól ársins
Fimmtudagur, 14 Janúar 2010 11:03

Transworld motocross tók nú um daginn helstu 250F crosshjólin í test, og völdu þeir að lokum Kawasaki KXF 250 2010 sem hjól ársins 2010.

Kawasaki KXF 250 2010 er heldur betur að slá í gegn, það hefur verið að vinna test hér og þar og núna síðast hjá Transworldmotocross, en þeir völdu hjólið hjól ársins 2010. Þeir sögðu "Ef það er eitthvað að í 250F Kawasaki, þá finnum við það allavega ekki, græna skrímslið er hreint út sagt undravert."

Eftir að öll hjólin voru prufuð voru test ökumenn Transworldmotocross einróma sammála um að Kawasaki KXF 250 2010 væri besta hjólið af þeim sem voru prófuð að þessu sinni. Mótorinn skilar mjög góðu afli, fjöðrunin skarar framúr og einfaldlega besta hjólið til að hjóla á.

Nýtt Transworldmotocross tímarit er komið í Nítró, nældu þér í eintak.