Almennir skilmálar
Hér finnur þú skilmála sem fylgja netversluninni – Við viljum að sjálfsögðu leysa úr öllum vandamálum sem upp koma svo ef það er eitthvað þá skaltu hafa samband við okkur og við munum gera okkar besta í að leysa úr því. Þú getur sent póst á netfangið [email protected] eða hringt í okkur í síma 557-4848.
Almennt
Skilmálar þessir gilda um sölu á vörum og þjónustu Nitro Sport ehf. til neytenda og eru staðfestir með staðfestingu á kaupum. Kaupandi verður að vera að minnsta kosti 16 ára til þess að versla í vefversluninni. Nitro Sport ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða vegna þess að varan sé uppseld.
Seljandi er Nitro Sport ehf., kennitala 541212-0940, VSK númer 112635
Staðsetning: Urðarhvarf 4, 203 Kópavogur.
Símanúmer: 557-4848
Netfang: [email protected]
Skilaréttur
Vörum er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum og í staðinn fá inneign eða fulla endurgreiðslu. Varan þarf að vera óskemmd og óopnuð. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda nema að um sé að ræða gallaða vöru, sé um gallaða vöru að ræða þá greiðir Nitro Sport ehf. fyrir endursendingu. Ekki er hægt að skila rafmagns-, tilboðs eða útsöluvörum.
Verð
Allt verð í netverslun eru með virðisaukaskatti (VSK) sem er 24%. Verð í netverslun geta breyst án fyrirvara. Nitro sport ehf. áskilur sér rétt til þess að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Sé vara uppseld þá verður haft samband við kaupanda og honum send önnur vara eða pöntunin endurgreidd ef varan er ekki væntanleg.
Afgreiðsla pantana
Hægt er að velja um þrjá afgreiðslu hætti en vörur í netversluninni skiptast í þrjá flokka, minni vörur, millistórar vörur og stærri vörur, hér eru verð fyrir hvern flokki eftir afgreiðsluhætti:
Minni vörur
Sækja í verslun – kostar ekkert aukalega.
Pakki á næsta pósthús – verðskrá Póstsins.
Pakki heim að dyrum (þar sem slík þjónusta er í boði) – Verðskrá Póstsins.
Pósturinn sér almennt um útkeyrslur nema þegar um er að ræða tæki eða stórar sendingar innanlands.
Nitro Sport ehf. leggur kapp á að afgreiða pantanir eins hratt og unnt er, pantanir sem berast fyrir hádegi munu því í flestum tilvikum vera afgreiddar á pósthús samdægurs. Hversu lengi það tekur kaupanda að fá pöntun er mismunandi eftir því hvar á landinu kaupandi er staddur en gott er að miða við 1-4 daga frá því að kaup ganga í gegn.
Greiðsluleiðir
Nokkrar greiðsluleiðir eru í boði í vefverslun Nitro Sport ehf. Mikið er lagt upp úr öryggi á netversluninni en allar greiðsluupplýsingar fara í gegnum öruggar greiðslusíður ásamt því að öryggi á síðunni almennt er í takt við öryggiskröfur sem vefverslanir þurfa að uppfylla í dag. Greiðslu leiðirnar eru:
Greiðsla með korti – hægt er að greiða með öllum helstu kreditkortum og greiðsla fer í gegnum greiðslusíðu hjá KORTA
Greiðsla með Netgíró – hægt er að greiða með Netgíró.
Millifærsla – hægt er að millifæra á reikning Nitro Sport ehf. fyrir pöntuninni, ath. Að pöntun er ekki send fyrr en greiðsla hefur borist
Reikningsupplýsingar Nítró Sport ehf. eru eftirfarandi:
Kt. 541212-0940
0301-26-54121